26.11.2009 21:29:37 / hherm
Dagur 3.
Ræs hálf átta, snús í 9 mínútur, vá það gerist aldrei. Gísli í skólann 8, við mæðgur í leikskólann og skólann 9. Rúmlega 10 var svo hringt úr leikskólanum, Sunna Billa veik. Oh...var nýbúin að státa mig af því að krakkarnir hafa ekkert verið veikir í haust/vetur.... og svo gerist það núna - á besta tíma...eða þannig. Reyndar hefði það ekki skipt neinu máli, það er búið að vera brjálað að gera síðan skólinn byrjaði. Skarlattsótt, það er að hrjá dóttur mína. Og litla skinnið fær ekki að fara til pabba síns um helgina, bara Gísli. Æi, hvað hún á eftir að verða sár á morgun

Við fórum semsagt til læknis í dag, og hún svo hress og kát, og læknirinn sagði að hún væri besta barnið sem hann hafði hitt í dag. Hún er eldhress, bara með skarlattsótt.
Ég bakaði vöfflur í dag, og hrærði mjólkurgrautinn frá því á sunnudaginn saman við degið. Helvíti góðar vöfflur. Nú eru börnin sofnuð og ég er bara í einhverju vonleysi...það er vont, og ég er líka svöng, það er ennþá verra. Vildi að ég væri á Grenivík núna, ég er bara lítil og langar í mömmu.
Bless.
»
25.11.2009 18:10:07 / hherm
Hæ
Dagur 2.
Fór á fætur hálf átta eftir svefnlausa nótt. Ætlaði ekki að fá SunnuBillu í mitt rúm svo að ég fór í hennar. Hún vældi í mest alla nótt, er að fá einhver hálsóþægindi skinnið. Staulaðist í leikskólann og skólann um 9, og hélt ég myndi sofna fram á borðið. Um 11 fórum við að skoða leiksk.lóðina, erum semsagt að fara að vinna verkefni - hanna leikskólalóð. Djöfulsins kuldi, var að frjósa í hel. Kom heim um 12, henti í mig einni samloku með skinku, osti, sveppum, púrrlauk og majones ofan á....frekar gott - við Elmar borðuðum alltaf svona samloku hérna í denn. Fór svo upp í rúm, undir tvær sængur og hlýnaði ekki fyrr en um 3 leitið, Steini hringdi svo korter yfir sem var gott, því annars hefði ég sofnað og kannski gleymt að sækja Sunnuna í skólann. Eftir fjögur var ég ennþá jafn syfjuð - og er enn. Sendi bæði Önnu Möggu og Hóffu 2 verkefni sem ég er búin að gera, og þær voru að sjálfsögðu mjög ánægðar með mig, og verkefnin. Svo hékk ég bara, var kallt og syfjuð. Núna er klukkan rúmlega sex og ég ætla að fara að elda. Hakk og spagó. Vonandi kemur Myrra mín í heimsókn í kvöld, og svo Steini líka - þarf knús og kúr.
Over and out.
»
24.11.2009 21:27:37 / hherm
Hæ
Ég ætla að prófa að skrifa hérna á hverjum degi í mánuð. Ég er nefnilega alltaf að hugsa um að byrja að skrifa dagbók, en það verður aldrei neitt úr því.
Vaknaði 7.30 eins og alltaf á virkum dögum. Gísli var þá vaknaður, eins og alltaf og búinn að kveikja á sjónvarpinu, eins og alltaf. Ég fékk mér te og lýsi og vakti svo Sunnu Billu sem svaf vært, í mínu rúmi, eins og nánast alltaf. Það gengur frekar illa fyrir hana að sofa heila nótt í sínu rúmi, og gengur líka illa hjá mér að færa hana í sitt rúm um miðjar nætur...
Gísli fór í skólann 10 mín yfir átta, Sunna Billa fékk sér morgunmat og kláraði barnatímann, og við fórum í leiksk. korter í níu og ég svo í skólann. Fór í UMSK tíma, kynnti verkefni um ströndina með Ásdísi og Goggu, tókum fyrir Strandstíginn í Hafnarfirði - æðislegt svæði.
Eftir tímann töluðum við svo við Samma, kennarann, og lístum óánægju okkar yfir einkunn fyrir síðasta verkefni. Fengum 8, sem er alls ekki slæm einkunn, en að okkar mati vorum við með mun betra verkefni en aðrir hópar sem fengu sömu einkunn. Hann tók þetta til greina, sagðist hafa búist við meiru af okkur.... veit ekki alveg hvernig ég á að skilja þau orð. En okkur leið betur, og bara nokkuð vel að hafa tjáð okkur um þetta við hann, og honum fannst gott að sjá og heyra að við höfum metnað.
Í hádeginu fór ég í Gula húsið og við Steini og Maggi borðuðum kjötfars á brauði - eða Rónabrauð, eins og Maggi kallar það. Ár og aldir síðan ég borðaði svona síðast - minnir mig einhvern veginn á Söndru, kjötfars á brauði með tómatsósu. Fór svo aftur í skólann, í jarðvegsfræði - ótrúlega skemmtilegur kall, kennarinn, en einhvern veginn á ég svo erfitt með að halda einbeitingu í þessum fyrirlestrum...fékk út úr prófi, 7,9 - sem er hækkun frá síðasta prófi, þannig að það er gott.
Djöfull var ég ógeðslega syfjuð í dag! og Ásdís líka, við kenndum bjórnum um sem við drukkum í sameiningu í gærkvöldi - hefði sennilega verið allt annað ef við hefðum tekið einn á mann.
Upp úr fjögur héldum við svo í borgó, við SunnaBilla, Steini og Ásgeir. Allir í bónus, Myrra og bara margir. Og ennþá var ég svo syfjuð.... gleymdi að kaupa mjólk, ekki gott þar sem fyrirhugaður var mjólkurgrautur í kvöldmatinn. Þegar við komum heim úr borgó voru fjórir gaurar inni hjá gísla og ég, fröken gribba ekki neitt mjög glöð. Ég skil ekki hvers vegna þessir gaurar sækja svo í að vera hérna...en kannski finnst þeim bara gott að láta tala við sig á háu nótunum annars lagið. Við fengum lánsmjólk svo kvöldmaturinn bjargaðist. Eftir kvöldmat sturtuðust börnin hvert á fætur öðru, og töluðu við pabba sinn, hvert á fætur öðru og tannburstuðust hvert á fætur öðru. Fengu svo lesningu í sameiningu. Við lesum alltaf inn í stofu, og svo ber ég þau, hvert á fætur öðru í sitt rúm, knúsað og kysst og góða nótt. Tónlistin er svo hækkuð inn í stofu, að ósk þeirra - og þau sofna. Ekkert ves, ekkert væl.
Núna ætti ég að vera að finna mér listamann, gera skýrslu, grúska í verkum, og gera svo mitt eigið verk upp úr hans.... en eins og ég sagði þá er ég bara svo syfjuð....get ekki lært eða lesið en ég get alveg bloggað, það er allt annað. Ásgeir kom fram, hrærði í súkkulaðibúðing með písk... "gerirðu þetta svona" sagði ég, með svona svip... Við erum víst að fara að borða þetta eftir smá. Svo ætla ég bara ekkert að gera. Bara liggja og kannski sofna í sófanum.
Svona var dagurinn minn. Hvernig verður hann á morgun? Kemur í ljós. Góða nótt.
»
09.08.2009 21:30:28 / hherm
Halló.
Ég veit ekki hvaða bjartsýniskasti ég var í þegar síðasta færsla var skrifuð. Auðvitað hefur ekkert orðið úr plönum fyrir 15 ára fermingarafmælishitting. Vonandi mæta bara sem flestir úr okkar frábæra árgangi á Grenivíkurgleðina næstu helgi, svo við getum séð á hvoru öðru fallegu fésin.
Hér úr Skólaflöt 12, já ég er flutt, úr 4 í 12 - er allt gott að frétta. Börnin mín eru sem sagt aftur flutt til mín, og við öll flutt í STÓRA íbúð, amk miðað við þessa sem ég var í. "Ég er vön að gera alla hluti sjálf", hef ég oft sagt - en mikið rosalega vantar mig karlmann á heimilið núna. Það er nefnilega eitt og annað sem þessir karlar eru góðir í! Amk betri en undirrituð. Það verður gott þegar skólinn byrjar aftur, þá get ég hóað í einhvern karl til að gera karlmannlega hluti fyrir mig..... ef ég verð ekki búin að því sjálf.
Sjáumst!
-hkh.
»
28.01.2009 17:21:48 / hherm
Halló.
Sko, að vera með nýrnasýkingu er ekki gaman. Að geta ekki mætt í skólann er ömurlegt. Að geta ekki strunsað á milli húsa er hræðilegt. Að hlusta á lækninn er erfitt. Að koma hugsunum mínum í orð er ekki hægt. En, að vera lifandi er frábært.
Reikningur hefur aldrei verið mín sterka hlið, en ef mér reiknast rétt þá eigum við, árgangur ´80, 15 ára fermingarafmæli á árinu. Það er alveg hreint sjúklega fyndið. Mér finnst ekki annað hægt en við hittumst einhvern góðan dag og höldum upp á þessa dásemd. Hvað segið þið sem álpist hérna inn um það ?
Ég legg til að nefnd verði sett á laggirnar sem vinni að málinu - og hér með skipa ég mig formann, þar sem að reikningur árgangsins er á mínu nafni í sparisjóðnum. Já, við eigum nokkra þúsundkalla síðan síðast, fyrir 5 árum !!! Dúdda mía hvað tíminn líður !
En allavega, þá er mín hugmynd sú að tengja okkar mót saman við Grenivíkurgleðina, svo þið sem eruð í vinnu, vinsamlegast takið sumarfrí í ágúst.
Í fyrsta sinn í 14 ár, er ég ekki að fara á Þorrablót. Það er glatað.
»
08.01.2009 18:29:39 / hherm
Jæja, komin "heim" aftur eftir gott jólafrí fyrir norðan. Ég er reyndar enn í fríi, byrja ekki aftur í skólanum fyrr en 13. Blokkin er nánast tóm, erum t.d. bara tvö hérna á hæðinni minni, og ég hef verið dugleg að þvo, þar sem þvottavélin er alltaf laus. Prófin gengu, reyndar ekki alveg eins og ég hafði vonað, en gengu þó. Ég stefni á að hækka mig aðeins á komandi önn. Fyndið hvað standardinn hefur hækkað síðan í framhaldsskóla, þar sem mottóið var að allt fyrir ofan 5, væri aukavinna. Ekkert nema gott um það að segja, þ.e.a.s. að metnaðurinn aukist með árunum. Ég hef kannski sagt það áður hérna, en ég er svo ánægð með fólkið sem er með mér í bekk, yndislegar manneskjur, og það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast því. Í próftíðinni las ég dagbókarfærslur Inga afa, frá því að hann var í Laugarskóla - og baráttu hans við erfið veikindi. Hann átti þess ósk heitasta að mennta sig - og gafst ekki upp þrátt fyrir slæmt ástand. Ég hafði gott af því að lesa þetta, gaf mér styrk. Svo takk afi, að hjálpa mér í gegn um prófin.
Strengdi einhver áramótaheit ? Mitt er að vinna í lottóinu. Mikið rosalega hlakka ég til.
»
12.12.2008 22:34:41 / hherm
Hæ.
Ég er ekki alveg að standa mig í þessu bloggrusli greinilega. Hér verður stiklað á stóru.
Stekkjastaur kom í nótt og hann var svo vænn að gefa mér röndótta sokka í skóinn - ég er sennilega búin að vera mjög þæg undanfarið. Tvö próf búin - eitt eftir. Fyrra gekk vel, seinna síður. Ég hitti kennarann út á bílaplani í dag og spurði hvar allar spurningarnar hefðu verið sem ég kunni - hann blikkaði mig bara og sagði mér ekki að hafa neinar áhyggjur. Þriðja verður vonandi fínt. Ég hef tekið borðtennisspaðann í hönd að nýju eftir u.þ.b 15 ára hlé. Mót á næstunni, á mánudaginn held ég. Ég stefni á sigur. Við erum reyndar ekki nema fjögur sem spilum, og ég eina stelpan - og vá hvað það er mikið búst að vinna strákana, bara gott. Í dag var ég t.d með 3 vinninga - í náttbuxum og stígvélum.
Ég ætla ekki að gefa neinar jólagjafir í ár, börnunum mínum auðvitað - velútvaldir fá jólakort. Knúsið verður allsráðandi í ár, enda þúsund sinnum dýrmætara en einhverjir dauðir hlutir í ljótum pappír.
Ég talaði við Valgerði um daginn - og samtalið þróaðist í þá átt að henni fannst frábært hvað ég var ánægð og hamingjusöm. Já, takk fyrir það, sagði ég - en bætti svo við; ég er samt ekkert hamingjusöm í hjartanu, þó ég sé glöð. Ég er mikið búin að hugsa um þetta síðan. Af hverju er ég ekki hamingjusöm ? Er það ekki hugarfar ?
- Engin af skyldum okkar er jafn vanrækt og skylda okkar til að vera hamingjusöm -
Takk fyrir, góða nótt.
-hkh.
»
16.11.2008 00:17:59 / hherm
Sæl veriði
Já, ég er hér enn, það er bara svo rosalega mikið að gera hjá mér. En smá tími núna til að segja ykkur smá sögu.
Í gær fór ég til Reykjavíkur, þurfti að fara með gleraugun hans Gísla og skó af mér í viðgerð. Stal líka Hennyju úr vinnunni og kíkti aðeins í fataskápinn hennar. Rétt fyrir kl. þrjú stökk ég inn í Kringluna með skóna til skósmiðsins, og hugsaði með mér að fyrst ég var nú komin þangað þá myndi ég versla mér sokkabuxur í leiðinni. Gekk rakleiðis inn í Cobru og Maðurinn ! sem var að vinna benti mér á bestu sokkabuxurnar á besta verðinu. Svo kom að því að borga en mér til mikillar furðu var veskið mitt ekki í töskunni. "Heyrðu, ég hlýt að hafa gleymt veskinu í bílnum, geturðu geymt þær aðeins fyrir mig" sagði ég afsakandi. Samt vissi ég alveg að ég hefði ekkert tekið veskið upp úr töskunni. Ég hljóp út í bíl, leitaði allstaðar, undir bílnum og undir næstu bílum líka. Skildi ekkert í þessu. Hringdi í Hennyju og spurði hvort veskið væri nokkuð hjá henni, nei, það var ekki þar. Eins og eitt stórt spurningamerki fór ég aftur inn í Kringlu og í sokkabúðina, og sagði Manninum að ég finndi ekki veskið, og gæti þ.a.l ekki borgað sokkabuxurnar. Hann sagði mér að fara að þjónustuborðinu og spyrja hvort einhver hefði skilað inn veski þangað. Jájá, það sakaði ekkert að athuga það, ég vissi samt alveg að ég hefði ekkert tekið veskið upp úr töskunni. En ég fór og spurðist fyrir. Stelpan á þjónustuborðinu bað mig um að bíða aðeins á meðan hún hringdi í öryggisgæsluna, og sagði mér síðan að fara upp á þriðju hæð undir eins. "Ha, til hvers"? spurði ég. "Þú átt að fara þangað strax" svaraði hún bara og ég gekk upp, enn stærra spurningamerki. Þegar ég kom inn í öryggisgæsluna tók á móti mér öryggisgæslugella og hún byrjaði að yfirheyra mig, "hefur þú tapað veski, hvernig lítur það út, hvar notaðirðu það síðast..." Mér fannst þetta eiginlega frekar fyndið og sagðist bara hafa ætlað að borga sokkabuxur en ekki getað það, þar sem veskið var horfið, en ég hlyti bara að hafa á einhvern óskiljanlegan hátt misst það úr töskunni. Þá horfði hún á mig samúðarfullum augum og sagði "komdu inn fyrir, þú hefur verið rænd". What ?? og sagði eins og mamma, "það getur ekki verið"! Ég fór svo inn, hringdi og lét loka kortunum og við tók áframhaldandi yfirheyrsla um í hvaða búðir ég fór og hvaða leið ég labbaði. Svo sagði hún mér að undanfarna daga hefðu ótal veski horfið, og tvær búlgverskar konur grunaðar. Ég sat þarna og trúði þessu engan vegin. Hvernig getur einhver farið ofan í rennda tösku og stolið veski án þess að maður verði nokkuð var við ? Eftir smá stund komu 2 konur sem einnig höfðu tapað veskjunum sínum. Svo bara sátum við þarna, og biðum eftir löggunni. Eftir klukkutíma kemur svo annar öryggisgæslumaður og segir okkur að löggan sé búin að handtaka konurnar og að öllum líkindum séu veskin okkar einhvers staðar í ruslatunnum í Kringlunni. Frábært. Þá er bara að bíða eftir að þau finnist. Eftir aðra yfirheyrslu hjá löggunni var ég alveg búin að fá nóg af þessu og bað um að fá að fara heim. Þessi ferð mín í Kringluna átti að taka 10 mín. en varð að tveimur klukkutímum. Ég áttaði mig eiginlega ekki almennilega á þessu fyrr en ég settist út í bíl, þá fór mér að líða mjög illa, eða óþægilega. Getur maður ekki lengur farið og keypt sér sokkabuxur í mesta sakleysi ? Ég hringdi í Hennyju og hún lánaði mér smá pening og svo brunaði ég heim í reiði minni á Hvanneyri aftur. Djöfull er þetta óþægilegt...einhver tussukelling fer ofan í töskuna mína og bara tekur það sem ég á ! Ömurlegt. Mér var svo sem slétt sama um peningana og kortin, en mér þótti vænt um þetta veski, Henny gaf mér það, og nú var þetta ógeð búið að henda því í ruslið !
En í dag er nýr dagur, og viti menn, veskið er komið í leitirnar og Anna Magga náði í það fyrir mig - og búlgvörsku konurnar gistu í fangaklefa í nótt og voru sendar úr landi í dag !
Bless bless búlgaría !
»
16.10.2008 16:47:05 / hherm
Sæl
Mikið óskaplega langar mig í stórt hús, með stóóóóóru eldhúsi, hrærivél og góðum bakaraofni. Þar stæði ég með svuntuna, húsið fullt af börnum á öskrinu og bökunarilmurinn í loftinu. Tvær pönnukökupönnur í viðbót og endalaust magn af sykri og hveiti. Fullkomið. Kannski rætist þetta einhvern tímann, vonandi. Einhvern tímann sagði ég að ég héldi að ég hefði fæðst í þennan heim til að vera mamma með svuntu. Síðan kom tímabil þar sem ég vildi þetta alls ekki - en núna er ég komin á þetta aftur. Ég held að okkur sé ætlað eitthvað hlutverk. Ég er kannski snarbiluð en ég trúi því að Guð ákveði þetta allt saman fyrir okkur - og að þetta sé allt saman ákveðið áður en við fæðumst. Ég trúi því líka að allt sem við gerum og lendum í, sé vegferð í áttina þangað sem við eigum að fara. Við "lendum" heldur ekki í neinu, allir erfiðleikar sem við teljum okkur lenda í, er hluti af vegferðinni. Það fólk sem hefur "lent" í mestum áföllunum á lífsleiðinni er að mínu mati það gáfaðasta og heilbrigðasta! Og ég ber mikla virðingu fyrir því fólki, efstar á blaði eru systur mínar, AnnaMagga og Hóffa, þær hafa gengið í gegnum hluti sem engin orð fá lýst. En hvar endar svo leiðin ? Samkvæmt minni trú, hjá Guði. Ég vil lifa mínu lífi þannig að ég verði boðin hjartanlega velkomin í ríki Drottins, þegar vegferð minni líkur á jörðinni. Trú, von og kærleikur skiptir öllu máli. Tilfinningar á borð við kærleika, fyrirgefningu og samúð frelsa okkur frá því sem gagntekur huga okkar. Og ekki má gleyma þakklætinu. Þökkum drottni því hann er góður og miskunn hans varir að eilífu, segir víða í Gamla testamentinu. Með þakklætinu er hugurinn vakandi yfir því góða sem við eigum og fáum. Það er dyggð að þakka einnig fyrir það sem við missum, verum þakklát fyrir það að hafa átt eitthvað til að missa, hitt væri heldur fátæklegt.
Hmm...bíddu hver er í umhverfis og skipulagsfræði ?? Ætti kannski frekar að læra til prests

En guð er í öllu - líka í Umskinu.
Farið með friði drottins.
Fáum okkur svo bjór í kvöld og verðum vitlaus
»
12.10.2008 13:44:05 / hherm
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ELSKU BESTA
EVA RUT !!
Ég veit ekki hvað málið er með myndainnsetningu hér...mér er hætt að takast að setja inn myndir - og myndbönd... en við vitum öll hvernig þessi elska lítur út - nema hvað að hún er ábyggilega enn fallegri í dag en í gær 
Njóttu dagsins Eva !
»
11.10.2008 20:01:02 / hherm
Yndislegt veðrið í dag, og ekkert yndislegra en að njóta þess, fara í göngutúr. Ein úti í náttúrunni með iPodinn, gerist ekki mikið betra en það. Ég er semsagt komin með labb/skokk æði - það sést best á því að ég fór 2x 7 km í dag

Og þetta er allt saman nýja iPodinum mínum að þakka. Og ég er ekki hætt - er að bíða eftir norðurljósunum og þá ætla ég aftur út. Rigningin kemur nefnilega aftur á morgun. Það er reyndar bara ágætt, þar sem ég á að vera að skrifa ritgerð. Um Selfoss og Eyrarbakka.
a) Hvar er þéttbýlisstaðurinn staðsettur í landinu? Af hverju teljið þið að þessi staðsetning hafi orðið fyrir valinu (m.t.t. landslags og landmótunar)?
b) Lýsið tilurð og upphafs þéttbýlisstaðarins?
c) Hvernig og hversvegna byggðist þéttbýlisstaðurinn upp? Hvað réði því að sum svæðin byggðust fyrr upp en önnur? Hvenær og hvernig byggjast þau upp (þ.e.byggðarmynstur)? (sjá grein 2 og 3).
d) Greinið byggðu svæðin frá óbyggðu (grænu) svæðunum. Af hverju eru sum svæðin byggð en önnur ekki, er þetta tilviljunar kent eða liggja aðra aðstæður þar að baki t.d. náttúrufarslegar, skipulagslegar eða er þetta hannað svona frá upphafi (sjá grein 4).
e) Notið aðferðafræði Conzens og Caniggia (sjá grein 2) til að greina skipulagsuppdrættina.Lýsið einkennum, mynstri og tengslum svæðanna.
Oh..þetta er svo spennandi !! Vó ég ræð varla við mig fyrir kæti !
»
05.10.2008 22:49:35 / hherm
Já, vá hvað ég er ein. Það er sko vel hægt að vera með fullt af fólki í kringum sig en samt vera einmana. Þetta ætlar að vera erfiðara en ég hélt. Það er eitthvað tómarúm í hjartanu mínu sem mér virðist vera ómögulegt að fylla. Ég veit vel að það eru ekki hlutir eða manneskjur sem geta fyllt það, það þarf ég að gera sjálf - ég veit bara ekki hvernig ég á að fara að því. Eða jú, það snýst eitthvað um það að vera sáttur í sínu eigin skinni o.s.frv. en greinilega er ég bara ekkert sátt. Hvernig verð ég sátt ? Ég á yndisleg börn, ég á yndislegan barnsföður, ég á yndislega foreldra, yndisleg systkin, yndislega vini og sjálf er ég yndisleg... hvað er þá málið ? Hvernig fer ég að því að berja í mig það sjálfstraust og þá sjálfsvirðingu sem ég á skilið ? Vill einhver koma og hrissssssta mig ?
Skólinn gengur - mig langar samt mikið til að fara að vinna, og eiga fleiri en eina krónu - svo ég geti keypt meiri sykur og hveiti og búið til fleiri pönnukökur

Pönnukökubaksturinn er það eina sem ég geri af viti þessa dagana ! Gott að það er á tæru allavega

Bara vika eftir af þessari stuttönn - hverri önn er semsagt skipt upp í tvær stuttannir - ég fer ekki í próf, bara eitt tímaverkefni, þannig að næsta vika verður róleg - þarf reyndar að skrifa heimildaritgerð sem skila á 25. okt. Ég er búin að vera að fá fínar einkunnir - er yfirleitt öðru hvoru megin við áttuna, ég vil vera í áttunni líka. Frekar skritið samt hvernig er gefið fyrir, þetta er náttúrulega svo huglægt mat á þessum verkefnum, þú ert að skapa og hanna, og það fer bara eftir því hvort kennarinn fíli það sem þú ert að gera svona nánast. Ég þarf eiginlega að setja einhverjar myndir hérna inn af því sem ég er að gera í skólanum, þó ég segi sjálf frá, þá er bara hellingur af því drullu flottur

Og sennilega verður jólagjöfin í ár frá mér teikning eftir sjálfa mig ! Hverjum hefði dottið í hug að ég gæti teiknað

Já, ætla að enda þetta á þessum broskalli

Hafðu það gott Sandra mín - og takk fyrir lesturinn
»
02.10.2008 02:41:38 / Slevan
Mér fannst alveg ómögulegt að afmælisbarnið sjálft þyrfti að setja inn sínar eigin hamingjuóskir þar sem hún er sú eina sem skrifar eitthvað hér, þannig að ég ákvað að setja inn árnaðaróskir í tilefni dagsins

Afmælisbarn dagsins er að sjálfsögðu skólastúlkan Helga Kristin

Til hamingju með daginn Helga


Ég var búin að finna fína mynd en kann bara ekki að setja hana inn

Slevan út
»
27.09.2008 15:58:49 / hherm
Góðan daginn. Er einhver að lesa þessa síðu ?? Anyways..þá er fínt að koma hugsunum sínum á blað.
Lífið á Hvanneyri city gengur sinn vanagang, ógislega mikið að læra og ógislega mikið að djamma líka. Jeminn, eitt partí eftir og svo búið. Ég á sem sagt afmæli næsta fimmtudag og ætla að halda boð í Hlégarði - heima hjá Þórdísi. Og mig langar í bíl í afmælisgjöf - bara svona svo þið vitið það. Ekki hægt að vera svona bíllaus - en ég verð bíllaus þangað til næsta haust - þeas ef ég fæ ekki bíl í afmælisgjöf... - ég meina hvað er einn bíll á milli vina ?
Krakkarnir eru hjá mér núna. Sunna Billa er hálfslöpp, full af kvefi, svo við erum bara inni í rólegheitum, borðum nammi og horfum á teiknimyndir. Gísli er orðinn svaka töffari, enda kominn í 1. bekk. Honum gengur vel í skólanum, er mest hissa á öllum þeim óþekktarormum sem sækja Varmalandsskóla - það er víst óhætt að segja að börn eru grimm. Ég ætla ekki að fara út í nein smáatriði, en ég er amk stórhneyksluð á þeim sögum sem hann segir mér úr skólanum. Það er gott að hann hneykslast á þessu líka, skilur ekkert í þessari óþægð í sumum börnum.
Fyrr á þessu ári talaði ég um rússíbanann sem ég er í - held að þessi ferð taki engan enda...en kannski er bara spurningin að hætta að bíða eftir þvi og ákveða bara sjálf að nú er þessi rússíbanareið mín búin. Mig dreymdi um daginn að ég var að hlaupa og datt ofan í holu. Þar sat ég föst, reyndi að príla upp en komst ekki - og þarna sat ég bara og horfði upp í bláan himininn fyrir ofan. Ef að þessi draumur er ekki lýsandi þá veit ég ekki hvað. Eeeen... nú er þetta búið - ég er búin að ákveða það. Búin að vera allt of lengi ofan í þessari helvítis holu.
Bless og svo brosa
»
22.09.2008 22:54:52 / hherm
Ingólfur Jó/Jökull á afmæli í dag kallinn - til hamingju með það

Og það þýðir að ég á afmæli eftir 10 daga og Eva eftir 20 - gaman að því.
»
Síður:
1 2 3 ...
8